Fimmtudagur 30.09.2010 - 16:00
- Ummæli
()
Heidi Klum hættir sem fyrirsæta hjá Victorias Secret eftir 13 ár
Ofurfyrirsætan Heidi Klum ætlar að hætta að trítla með englavængi niður pallana hjá Victorias Secret í haust.
Heidi, sem er nú orðin 37 ára og á 4 börn telur þetta komið gott og hefur sent frá sér tilkynningu um að hún ætli ekki að taka þátt í fleiri sýningum með undirfataframleiðandanum vinsæla.
Frá þessu greindi hún á tískuvikunni í París á dögunum.
Ég mun samt alltaf elska Victorias Secret. Þetta hefur verið stórbrotinn tími.
Heidi mun ætla að einbeita sér að starfinu sem þáttastýra Project Runway og þróa sína eigin fatalínu í fitness geiranum, nú og sinna móðurhlutverkinu sem er ekki lítið þegar um fjögur börn er að ræða.
Smelltu til að stækka og skoða myndir af þessari fallegu konu.

Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is








