Fimmtudagur 30.09.2010 - 16:19 - Ummæli ()

Fulltrúar gengu út undir ræðu Ögmundar Jónassonar

Þorbjörg þoldi ekki ummæli Ögmundar um Geir Haarde

Nokkrir fulltrúar á þingi Sambands íslenskra sveitarfélaga gengu út undir ræðu Ögmundar Jónassonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Var Ögmundur þar að ræða landsdóm og ákæruna á hendur Geir H. Haarde en það misbauð nokkrum fulltrúum á þinginu.

Segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, úr flokki Sjálfstæðismanna úr borginni, við mbl.is að þau ummæli Ögmundar að Geir væri drengur góður en verið væri að ákæra ráðherra en ekki persónuna Geir hafi verið of mikið af því góða. Hafi ráðherra líkt ákærunni við umferðarlagabrot og snérust um reglur.

Þorbjörg, sem var ein þeirra sem út gekk, segir nær lagi að Ögmundur nýtti tímann til að ræða sveitarstjórnarmál því allir viti að ákæran á hendur fyrrum forsætisráðherra sé persónuleg og pólitísk.

„Hann hefur mál sitt á þessu og gekk fullkomlega yfir strikið.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is