Fimmtudagur 30.09.2010 - 16:49 - Ummæli ()

Sveitarstjórnarráðherra stefnir að frekari eflingu sveitarstjórna landsins

Frekari sameining sveitarfélaga er af hinu góðu að mati ráðherra

Frekari efling sveitarstjórnarstigs landsins að svo miklu leyti sem það er hægt við núverandi aðstæður er markmið stjórnvalda að því er fram kom í ræðu Ögmundar Jónassonar, sveitarstjórnarráðherra, á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri.

Í ræðu sinni nefndi ráðherrann að bráðlega muni liggja fyrir tillögur sérstakrar tekjustofnanefndar um styrkingu tekjustofna sveitarfélaganna. Næstu skref þyrfti að taka eftir strangri áætlun sökum stöðu ríkissjóðs og krafna Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Ljóst væri þó að hvers kyns efling tekjustofnanna nú yrðu annaðhvort að fela í sér auknar álögur á íbúa eða betri nýtingu núverandi tekjustofna.

Vék ráðherrann ennfremur að þeirri endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem farið hefur fram og er nú lokið. Unnið væri að nánari greiningu tillagna sem kæmu til umræðu á ársfundi Jöfnunarsjóðsins um miðjan október. Einnig nefndi Ögmundur að í undirbúningi væri að greiða út aukaframlag Jöfnunarsjóðs.

Ráðherra lauk máli sínu á að hann sé mjög fylgjandi sameiningum sveitarfélaga. „Hvað varðar sameiningar sveitarfélaga er afstaða mín í skýr. Ég er fylgjandi því að sveitarfélög eflist með frekari sameiningum, ég tel að þau verkefni sem þeim hefur verið falið og eru að taka að sér séu þess eðlis að það sé betra að þau séu nægjanlega öflug til að valda þeim sem skyldi – íbúanna vegna. Sameining er af hinu góða en ég vil ekki að það gerist með einhverjum fyrirmælum að ofan.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is