Mánudagur 04.10.2010 - 08:36 - Ummæli ()

Viðvörun gefin út vegna yfirvofandi hættu á hryðjuverkaárás í Evrópu

Stutt er síðan Eiffel-turninn í París var rýmdur vegna hryðjuverkaógnar.

Bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefur vísbendingar um yfirvofandi hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstu dögum. Hefur utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna gefið út viðvörun til bandarískra ríkisborgara vegna ferðalaga um Evrópulönd.

Í frétt BBC segir að ekkert ákveðið Evrópuland sé nefnt í tilkynningunni, heldur gildi viðvörunin um alla Evrópu.

Bresk yfirvöld hafa tekið undir þetta og aukið viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka upp í næst efsta þrep. Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins segir miklar líkur á því að liðsmenn al-Qaeda láti til skara skríða á næstu dögum. Líklegast er að skotmörk samtakanna séu í Bretlandi, Frakklandi og Þýsklandi. Utanríkisráðherra Frakklands segir viðbúnaðarstig ekki hafa verið hækkað að sinni, en það er þegar í næst efsta þrepi þar í landi.

Að sögn eiga árásirnar að líkjast árásunum í Mumbai á Indlandi fyrir tveimur árum. Þá létu 166 lífið og meira en 300 særðust þegar tíu þungvopnaðir menn hófu skothríð á fjölförnum stöðum, kveiktu elda og tóku erlenda ferðamenn í gíslingu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is