Fimmtudagur 07.10.2010 - 10:31 - Ummæli ()

Konur nauðga körlum í Afríku: Engin lög um slík tilfelli

Ný hætta ógnar nú karlmönnum í Zimbabve en fimm hafa leitað til lögreglu eftir að hafa verið hópnauðgað af konum.

Sá síðasti sem kærði var karlmaður á þrítugsaldri. Hann leitaði til lögreglu eftir að honum hafði verið nauðgað og öllu stolið af honum.

Hann var ginntur inn í bíl af hópi fimm kvenna á aldrinum 17-46 ára. Þær bundu fyrir augu hans og byrluðu honum ólyfjan og misnotuðu í kjölfarið. Eftir þetta tóku þær af honum peningana og símann og skildu hann eftir, nakinn og umkomulausan á víðavangi.

Í Zimbabwe gilda engin lög um nauðganir á karlmönnum og einungis er gert ráð fyrir að konur og stúlkur verði fyrir slíku.

Í hinum tilvikunum sem hafa orðið á þessu ári hefur karlmönnum m.a verið nauðgað meðan byssu hefur verið beint að þeim og í síðasta mánuði þvinguðu tvær konur 44 ára karlmann til að stunda kynlíf með sér meðan annar karlmaður stóð vörð um þau. Þær sáu þó til þess að hann notaði smokk.

Margir velta nú fyrir sér hvort þetta eru einskonar ‘hefndaraðgerðir’ af hálfu kvenna þar í landi en lengi hafa konur og stúlkubörn (niður í nokkurra mánaða gamlar) mátt búa við hrikalegt ofbeldi af þessu tagi. Víða í Afríku ríkir sumastaðar sú hjátrú að lækna megi HIV með því að nauðga óspjallaðri mey en almennt glíma afrískar konur við mikla lítilsvirðingu af hálfu karlmanna og nauðganir eru daglegur viðburður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is