Viðskipti Fimmtudagur 07.10.2010 - 10:10 - Ummæli ()

Rætt um Landsdóm og Hæstarétt utan dagskrár. Saksóknarar Alþingis skipaðir

Utandagskrárumræða verður á Alþingi í dag um stöðu Hæstaréttar í ljósi fyrirhugaðra málaferla fyrir Landsdómi.

Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, er málshefjandi í umræðunni, en Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, er til svara. Aðrir þingmenn geta svo blandað sér í umræðuna.

Þegar ákærur á hendur fyrrverndi ráðherrum voru ræddar á Alþingi í síðasta mánuði sagði Sigurður Kári að Landsdómur myndi lama Hæstarétt næstu misserin, þar sem fimm af níu dómurum í Hæstarétti eiga að setjast í Landsdóm.

Utandagskrármræðan hefst klukkan tvö í dag. Áður en að því kemur er búist við að þingið samþykki að skipa Sigríði J. Friðjónsdóttur saksóknara í máli Geirs H. Haarde fyrir Landsdómi. Tillaga þess efnis er rædd á fundi þingmannanefndar um bankahrunið, sem nú stendur yfir. Þá er lagt til að Helgi Magnús Gunnarsson verði varasaksóknari í málinu. Sigríður er aðstoðarríkissaksóknari en Helgi Magnús er saksóknari efnahagsbrota hjá embætti ríkislögreglustjóra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is