Engin formleg umsókn frá ECA Programs. Varla mörg störf í boði fyrir Íslendinga

Mörg störf munu væntanlega ekki fylgja starfsemi ECA hérlendis.
Enn hefur engin formlega umsókn borist frá fyrirtækinu ECA Programs um leyfi til skráningar herþota hér á landi og er málið allt í nokkurri biðstöðu. Þó hefur komið fram að hefji fyrirtækið starfsemi hérlendis muni það ekki hafa í för með sér fjölda nýrra starfa eins og margir hafa talið.
Samkvæmt bréfi sem Flugmálastjórn hefur sent samgönguráðherra og Morgunblaðið greinir frá koma fram efasemdir um að vera ECA hér skapi ýkja mörg störf. Komið hafi fram í viðræðum við forsvarsmenn fyrirtækisins að stærsti hluti viðhalds muni þrátt fyrir allt fara fram annars staðar en hér. Þá sé ólíklegt að íslenskir flugmenn fái störf hjá fyrirtækinu
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is