Níu þingmenn Samfylkingar vilja að þjóðin ákveði framtíð fiskveiðistjórnunar

Leggst það vel í þingið að leyfa þjóðinni að kjósa um sjávarútveginn?
Gangi hugmyndir níu þingmanna Samfylkingarinnar eftir mun þjóðin fá tækifæri til að ákveða framtíð fiskveiðistjórnunar landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hafa níumenningarnir sent frá sér ályktun þar sem ríkisstjórninni er falið að undirbúa slíka þjóðaratkvæðagreiðslu.
Segir í þingsályktunartillögu þeirra að í umræddri þjóðaratkvæðagreiðslu verði bornar upp grundvallarspurningar um hvort taka eigi upp nýtt fiskveiðistjórnarkerfi, setja sérstakt stjórnarskrárákvæði um eignarhald auðlindarinnar og innkalla aflaheimildir og endurúthluta þeim gegn gjaldi til þjóðarinnar.
Að ályktuninni standa þau Ólína Þorvarðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Helgi Hjörvar, Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Oddný G. Harðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Skúli Helgason,
Valgerður Bjarnadóttir og Magnús Orri Schram.
Tillagan í heild sinni hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is