Ölgerðin fær líklega töluverðar afskriftir til að tryggja reksturinn áfram
Hið rótgróna fyrirtæki Ölgerðin Egill Skallagrímsson mun að líkindum þurfa að fá töluverðar afskriftir skulda til að tryggja áframhaldandi rekstur en skuldir þess eru miklar. Er fyrirtækið í gjörgæslu hjá viðskiptabanka sínum, Arion, þar sem þessa dagana er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu.

Ölgerðin fær líklega afskrifaðar töluverðar skuldir
DV fjallar um bága stöðu Ölgerðarinnar sem fór hamförum á árunum fyrir hrun og keypti upp fjölda skuldsettra fyrirtækja á skömmum tíma. Keypti fyrirtækið fjölmarga keppinauta sína og merki þeirra eins og alla safalínu Mjólkursamsölunnar, Frissa Fríska og Blöndu og framleiðslufyrirtækið Sól.
Krafðist forstjórinn, Andri Þór Guðmundsson, þess fyrir tæpu ári síðan að einn starfsmaður Ríkisskattstjóra fengi áminningu og jafnvel brottrekstur fyrir að ýja að því að uppsagnir í fyrirtækinu í desember á síðasta ári kæmu til vegna offjárfestinga Ölgerðarinnar. Benti Andri þá á máli sínu til stuðnings að allir reikningar fyrirtækisins væru þá í skilum.
Svo er ekki lengur og fer Arion banki nú yfir tiltækar aðgerðir til aðstoðar fyrirtækinu. Er talið að endurskipulagningu þess ljúki á næstu tveimur mánuðum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is