Glöggt er gests augað. Líta Ísland öðrum augum en ferða- þjónustan

Noregur er ekki mikill samkeppnisaðili Íslands í ferðamennskunni
Erlendir gestir sem Ísland sækja heim hafa allt aðra mynd af landi og þjóð en ferðaþjónustuaðilar gera sér í hugarlund samkvæmt nýrri úttekt. Þannig ákveða ferðamenn að koma hingað á allt öðrum forsendum en flestir halda og fáir telja Noreg vera helsta keppinaut Íslands varðandi ferðamennsku.
Þetta er niðurstaða úttektar sem Friðrik Eysteinsson, hjá Háskóla Íslands, gerði meðal ferðamanna annars vegar og ferðaþjónustuaðila hins vegar. Virðist ferðaþjónustan ekki vera meira á nótunum en svo að mat þeirra aðila á samkeppnishæfi landsins var allt annað en ferðamannanna sem þeir þjónusta.
Segir Friðrik við fréttastofu Rúv að þetta hafi komið á óvart. Ferðamenn meta þannig samkeppnishæfi landsins mun betur en þeir sem starfa í greininni. Sem dæmi telji 60 prósent ferðaþjónustuaðila Noreg vera helsta keppinaut Íslands en því voru aðeins 8 prósent ferðamanna sammála.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is