Mánudagur 11.10.2010 - 07:39 - Ummæli ()

Hiti vegna stjórnlaga- þings: Karl Th. kallar Jónas „grobbið gamalmenni“

Áhrifamaður í Samfylkingunni ræðst í dag harkalega á frambjóðanda til stjórnlagaþings og kallar hann „grobbið gamalmenni“ og ennfremur „orða- og hugsanaböðul.“

Það er Karl Th. Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, sem velur Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra DV, þessi orð á vefsíðu tímaritsins Herðubreiðar. Þetta er fyrsta færslan á síðunni frá því vefritið fór í sumarfrí í júní.

Jónas tilkynnti fyrir nokkrum dögum um framboð sitt til stjórnlagaþings. Hann hefur í reglulegum pistlum á vef sínum, jonas.is, m.a. gagnrýnt Samfylkinguna harðlega. Ekki er langt síðan hann kallaði Karl Th. Birgisson „hagsmunagæslumann Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.“

Í pisti Karls Th. Birgissonar segir:

„Sé í blöðum, að Jónas Kristjánsson býður sig fram til stjórnlagaþings. Geri ráð fyrir, að hann hljóti afburðakosningu. Það er við hæfi. Frambjóðandinn er orða- og hugsanaböðull. Montar sig af að skrifa ekki fleiri en fimmtán setningar um hvert efni. Lengra mál flæki hugsun. Í hans tilviki sæi ekki á svörtu.“

Karl Th. segir að Jónas sérhæfi sig í „illa stíluðum dónaskap, fúkyrðum og uppnefnum.“ Það væri í lagi, ef örlaði á kímnigáfu.

„Þjóðin mun kjósa á stjórnlagaþing grobbið gamalmenni á þurrafylleríi. Þótt það hafi aldrei haft nema hálfa óbrenglaða hugsun í senn. Þrátt fyrir yfrin tækifæri. Það er við hæfi“, skrifar Karl Th. Birgisson.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is