Mánudagur 11.10.2010 - 14:08 - Ummæli ()

Viðsnúningur hjá 365 miðlum. Úr 344 milljóna tapi í 86 milljóna hagnað

Viðsnúningur hjá fyrirtæki Jóns Ásgeirs Jóhannessonar

Nokkur hagnaður mælist á efnhagsreikningi 365 miðla það sem af er þessu ári sem er veruleg breyting frá fyrra ári þegar fyrirtækið tapaði 344 milljónum króna. Staðan á yfirstandandi ári er öllu betri eða 86 milljónir króna í plús.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá fjölmiðlasamsteypunni sem skilaði í dag frá sér ársreikningi fyrir síðasta ár til Ríkisskattstjóra.

Sterkari staða 365 nú helgast þó af verulegu leyti af því að hlutafé var aukið um milljarð króna snemma í vor og var stór hluti þess fjár notað til að greiða niður skuldir fyrirtækisins. Jón Ásgeir Jóhannesson heldur sem kunnugt er enn um stjórnartauma fyrirtækisins en það gefur út Fréttablaðið og heldur úti Stöð 2, Vísi.is og Bylgjunni svo fátt sé nefnt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is