Miðvikudagur 13.10.2010 - 02:41 - Ummæli ()

Ísland tapaði fyrir stjörnuliði Portúgala og er neðst í riðlakeppni EM

Heiðar Helguson skoraði mark Íslands, hans 12 mark fyrir A-landsliðið.

Íslenska A-landslið karla í fótbolta tapaði fyrir því portúgalska í kvöld, 1-3, og hefur því tapað þremur fyrstu leikjum sínum í undankeppni Evrópumótsins og vermir þannig botnsætið í riðlakeppninni.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Íslendinga, þar sem strax á 3. mínútu skoraði stjörnuleikmaðurinn Ronaldo með skoti beint úr aukaspyrnu. Íslensku strákarnir gáfust þó ekki upp og náði Heiðar Helguson að jafna leikinn með skalla af miklu harðfylgi einsog honum er lagið. Það stóð reyndar ekki lengi, Raúl Meireles kom Portúgölum yfir á ný á 27. mínútu með sannkölluðum þrumufleyg af löngu færi. Leikurinn var svo í járnum lengst af í síðari hálfleik, en Helder Postiga skoraði þriðja markið á 72. mínútu eftir klaufamistök Gunnleifs í markinu.

Portúgalar eru því loks komnir á skrið í undankeppninni, en þeir unnu þarna sinn annan leik í röð eftir að hafa klúðra fyrstu tveimur leikjunum með jafntefli og tapi. Portúgalar hafa því sjö stig í öðru sæti riðilsins, en Norðmenn eru efstir með fullt hús stiga, níu stig, eftir þrjá leiki. Danir eru svo í þriðja sæti með sex stig, en þeir unnu Kýpverja í kvöld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is