Miðvikudagur 13.10.2010 - 17:06 - Ummæli ()

Stytta opnunartíma og íhuga áfengisbann á vínveitingastöðum

Áfengisbann á vínveitingastöðum?

Borgarráð samþykkti í dag tillögur Samfylkingar og Besta flokksins að stytta opnunartíma vínveitingahúsa í miðbæ Reykjavíkur. Frá og með áramótum mega slíkir staðir aðeins vera opnir til fimm á morgnana og hálffimm næsta sumar.

En það var ekki það merkilegasta við þennan fund borgarráðs heldur sú bókun borgarráðsfulltrúa Besta flokksins að þar sem reynslan af reykingabanni á vínveitingastöðum væri góð væri næsta skref að banna áfengi á slíkum stöðum. Það væri margsannað að neysla áfengis hefði ótvírætt alvarlegar afleiðingar í för með sér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is