Þingmaður Framsóknar: Fyrsta skefið í átt að þjóðarsátt í skuldamálum

Eygló segir þáttaskil hafa orðið í samvinnu stjórnar og stjórnarandstöðu til að taka sameiginlega á skuldavanda heimilanna.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir fund ráðherra með þingnefndum í gærkvöld fyrsta skrefið í átt að þjóðarsátt vegna skuldavanda heimilanna. Hún segir þær lausnir sem ræddar hafi verið á fundinum séu ekki einfaldar en þó framkvæmanlegar.
Um var að ræða fund um 30 þingmanna úr öllum flokkum í Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöld, en Eygló segir fundinn í ólíkan þeim sem áður hafi verið haldnir af núverandi ríkisstjórn.
„Þetta sýndi það að það er vilji til samráðs. Fundurinn var ólíkur að því leiti að þetta var ekki upplýsingafundur á vegum ráðherranna heldur að þeir voru komnir til þes að hlusta og tala við stjórnarandstöðuna og almenna þingmenn og það er nýtt“ sagði Eygló á Rúv í morgun.
Þær aðgerðir sem aðallega voru ræddar á fundinum voru annars vegar almennar niðurfærslur og hins vegar flatar niðurfærslur lána heimilanna. Einnig hafi verið farið yfir sértækari aðgerðir til handa heimilunum.
„Vandinn er gífurlegur. Það eru engar lausnir einfaldar en þær eru framkvæmanlegar . Það þarf þjóðarsátt og þá þurfa allir að koma að borðinu; stjórn, stjórnarandstaða, atvinnurekendur, launþegar og lífeyrisþegar“. Eygló telur fundinn í gær hafa verið skref í þá átt.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur undir með Eygló að þessu og leyti og er það líklega í fyrsta skipti sem þær eru sammála í þessum efnum.
„Ég held það sé ekki hægt að finna marga fundi í sögunni þar sem helmingur þingmanna, úr stjórn og stjórnarandstöðu, hefur setið saman í einlægum og málefnalegum umræðum um hvernig hægt er að leysa vandann,“ segir Jóhanna í Fréttablaðinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is