Miðvikudagur 13.10.2010 - 06:13 - Ummæli ()

Vatnsverksmiðjan á Snæfellsnesi: Óvissa um eignarhald og fjármögnun

Óvissa ríkir um eignarhald og fjármögnun vatnsátöppunarverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi. Verksmiðjuhúsið er fokhelt og var dyragötum og gluggum lokað fyrir rétt rúmum mánuði.

Frá þessu er sagt í Fréttablaðinu í dag.

Blaðið segir að Iceland Glacier Products hafi tapað rúmum 118,7 milljónum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Þetta hafi þriðja starfsár fyrirtækisins, sem hollenski tannlæknirinn Otto Spork stofnaði hér á landi. Þrátt fyrir að framkvæmdir hafi staðið yfir á Rifi í um þrjú ár sé verksmiðjan ekki nálægt því að geta hafið framleiðslu á flöskuvatni. Þá hafi tæki til átöppunar ekki verið keypt svo vitað sé.

Í fréttinni er rifjað upp að Spork rak vogunarsjóðinn Sextant Strategic Opportunities í Kanada um nokkurra ára skeið. Sá sjóður rak nokkra undirsjóði, sem skráðir eru á Cayman-eyjum. Þeir fjármögnuðu byggingu átöppunarverksmiðjunnar á Rifi með lánveitingum. Hafi þeir breytt skuldum í hlutafé á síðasta ári. Við það hafi þeir eignast 60% hlut í Iceland Glacier Products. Riambel, fjárfestingarfélag Sporks sem skráð er í Lúxemborg, á 23,7 prósenta hlut. Ekki liggur fyrir hver á tæp þrettán prósent en hluturinn er skráður á félagið Hermitage. Félög tengd Spork eru jafnframt helstu kröfuhafar.

Þá kemur fram að kanadíska verðbréfaeftirlitið hóf að rannsaka fjármögnunarfyrirtæki Sporks fyrir um tveimur árum. Er málið rannsakað sem svikamál eins og Eyjan hefur nokkrum sinnum greint frá. Fréttablaðið segir að kanadíska verðbréfaeftirlitið hafi kyrrsett sjóði Sporks á Cayman-eyjum og í Kanada fyrir tæpum tveimur árum. Skiptastjóri í Kanada vinni að slitum þeirra og leiti eftir því að selja eignir úr þeim, þar á meðal átöppunarverksmiðjuna, og greiða út til sjóðsfélaga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is