Aukin áhugi fjárfesta á fasteignum sem bankarnir hafa eignast
Innlendir og erlendir fjárfestar hafa áhuga á að kaupa fasteignir sem bankarnir tóku yfir í kringum hrunið og dótturfélög þeirra stýra. Á meðal þess sem er í skoðun er að fjármálafyrirtæki stofni sjóði sem kaupi eignirnar. Fjárfestarnir kaupi hlut í sjóðunum.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
„Það er klárt að í heimi þar sem fjárfestingarkostir eru mjög takmarkaðir eru fasteignaverkefni áhugaverður möguleiki. Við erum með nokkur slík verkefni í gangi,“ er haft eftir Kristínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital.
Fréttablaðið segir að dótturfélög bankanna, sem haldið hafa utan um fasteignir sem áður voru í eigu fasteignafélaga og fjárfesta, hafi stokkað þau upp og endurfjármagnað. Bæði sé um atvinnuhúsnæði og íbúðir að ræða. Eftir því sem næst verði komist hafi félögin öll búið til eða séu með í mótun pakka með skyldum eignum sem hægt sé að selja í einu lagi.
Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Regins, dótturfélags Landsbankans, segir líklegt að fjárfestar muni í fyrstu kaupa atvinnuhúsnæði sem þegar hafi verið fjárhagslega endurskipulagt. Síðan komi íbúðir á markað. „Það eru teikn á lofti að íbúðafélög að skandinavískri fyrirmynd sem kaupa fasteignir og leigja þær áfram sé í mótun,“ er haft eftir honum í Fréttablaðinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is