Fimmtudagur 14.10.2010 - 06:32 - Ummæli ()

Fjárfesting FL Group í fasteignum vestanhafs 2007 sögð hluti fjársvikamáls

Fjárfesting FL Group í fjórum fasteignaþróunarverkefnum í Bandaríkjunum í maí 2007 er sögð hluti fjársvikamáls stjórnenda bandaríska félagsins Bayrock LLC.

Morgunblaðið segir frá þessu í dag.

Blaðið segir að í tilkynningu FL Group til kauphallarinnar 22. maí 2007 hafi meðal annars verið haft eftir Tevfik Arif, stjórnarformanni Bayrock LLC, að mikil tilhlökkun sé fyrir hendi hjá forsvarsmönnum bandaríska félagsins að starfa með FL Group.

Sá hinn sami Arif hafi verið handtekinn fyrir um tveimur vikum í Tyrklandi og ákærður fyrir aðild að rekstri alþjóðlegra vændis- og mansalshringja. Arif hafi neitað sök í yfirheyrslum vegna málsins.

Þá segir í Morgunblaðinu að fyrrverandi starfsmaður Bayrock segi í stefnu á hendur fyrrverandi stjórnendum sínum að fimmtíu milljóna dollara fjárfesting FL Group hafi verið ráðstafað að minnsta kosti að helmingi í persónulega þágu stjórnenda bandaríska félagsins. Fimmtíu milljóna dollara greiðsla FL hafi jafnframt verið skráð sem lán, auk þess sem íslenska félagið hafi ekki verið skráður eigandi þeirra verkefna sem fjárfestingin sneri að, en lögmenn stefnanda telja þá staðreynd til marks um að aðkoma FL Group hafi verið grunsamleg.

Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson voru helstu forystumenn FL Group meðan félagið starfaði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is