Viðskipti Fimmtudagur 14.10.2010 - 20:30 - Ummæli ()

Forseti ASÍ eindregið gegn almennri lækkun á húsnæðisskuldum heimila

Gylfi Arnbjörnsson segir að lífeyrissjóðirnir séu ósnertanlegir þegar kemur að því að lækka skuldir heimilanna í landinu.

Forseti ASÍ leggst gegn því að almennar húsnæðisskuldir heimila verði færðar að einhverju leyti niður, líkt og rætt hefur verið um undanfarna daga. Hann segir óframkvæmanlegt að velta hluta af þeirri niðurfærslu yfir á lífeyrissjóðina í landinu.

„Við höfum áhyggjur af því að ef það á að beina þeirri fjárhæð á okkar lífeyriskerfi, þá finnst okkar það vart vera aflögufært til þess. En að sama skapi veltum við því fyrir okkur með hvaða hætti á að fjármagna þetta. Það að ræða við stjórn lífeyrissjóðs um að nota lífeyrisréttindi til að fjármagna þessa niðurfærslu er svona álíka og að fá bankastjóra Íslandsbanka eða Arion banka til að nota innstæðureikninga til að borga skuldirnar í landinu. Það hefur enginn umboð til þess að nota lífeyrisreikninga til annars en að borga lífeyri,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson í kvöldfréttum Sjónvarpsins eftir fund stjórnvalda með aðilum vinnumarkaðarins, sem stóð fram á kvöld.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði fundi síðustu daga hafa sýnt að töluverð andstaða væri við almenna niðurfærsluleið.

„Við þurfum að vinna hratt í þessu máli og fá niðurstöðu vegna þess að það er ekki hægt að bíða lengi með þetta og vera með einhverjar væntingar í loftinu, en það er vaxandi andstaða við það að fara almenna niðurfærsluleið,“ sagði hún.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is