Afþakkaði kokteilboð sem átti að efla tengsl stjórnmála og viðskiptalífs
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, afþakkaði kokteilboð hjá félaginu LeiðtogaAuði sem hefur þann tilgang að efla tengsl kvenna í leiðtoga og stjórnunarstörfum hjá íslenskum fyrirtækjum. Í boðinu átti að ræða hvort stjórnmálamenn og viðskiptalífið gætu átt samelið.
Fram kemur að markmið félagsins sé að konur í forystusveit íslensks viðskiptalífs kynnist hver annarri og geti nýtt sér tengsl, stuðning, aðstoð og önnur tækifæri sem félagsskapurinn býður upp á, auk þess að vera þeim konum sem á eftir koma hvatning, fyrirmynd og stuðningur. Þá segir að LeiðtogaAuður einbeiti sér að málefnum viðskiptalífsins og því umhverfi sem það starfar í á hverjum tíma. Í boðsbréfi til þingkvenna segir meðal annars:
„Við hjá LeiðtogaAuður ætlum að hittast á Nordica, happy hour, á fimmtudaginn næsta þann 21. október og eiga þar spjall saman frá klukkan 17-19. Þá ætlum við að taka fyrir málefnið „Geta stjórnmálamenn og viðskiptalífið átt samleið?“ Mikil umræða hefur verið undanfarið á þessu sviði og oft er gagnrýni á báða bóga. En ef við ætlum að komast út úr kreppunni og efla atvinnulífið og auka samkeppnishæfni Íslands í leiðinni þá er mikilvægt að allir aðilar vinni saman.“
Smugan segir að Margrét Tryggvadóttir hafi afþakkað boðið með eftirfarandi bréfi:
„Kæra Brynja og aðrir þátttakendur í LeiðtogaAuði,
Í 8. bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis segir:
„Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármálalífs og stjórnmála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdraganda bankahrunsins.” ( bls. 170).
Í ljósi þess afþakka ég þetta boð.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is