Viðskipti Sunnudagur 17.10.2010 - 19:06 - Ummæli ()

Ögmundur: Fjármála- kerfi og lífeyrissjóðir í afneitun. Almenn lækkun nauðsynleg

Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, segir að fjármálastofnanir, og þar með lífeyrissjóðir, verði að láta af þeirri afneitun sem þær hafa verið í og horfast í augu við að grípa þurfi til almennra aðgerða til lækkunar skulda heimilanna. Lífeyrissjóðirnir eigi allt sitt undir greiðslugetu almennings sem hafi tekið á sig tug prósenta kjararýrnun.

Þetta sagði Ögmundur í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

„Lánin snarhækkuðu en kaupmátturinn rýrnaði. Frá því í febrúar 2008 og fram á þennan dag hefur verðbólga verið 28,4% en á sama tíma hefur kaupmáttur launa rýrnað um 10,7% þannig að þetta er af nákvæmlega sömu rót sem þessi vandi er,“ rifjaði Ögmundur upp.

Fjármálakerfi og lífeyrissjóðir í sjálfsafneitun

„Frá hruni hefur íslenska fjármálakerfið verið í sjálfafneitun. Það er óhjákvæmilegt að því tímaskeiði ljúki og að fjármálakerfið horfist í augu við eigin ábyrgð.“

Þetta eigi jafnt við um lífeyrissjóði eins og aðrar fjármálastofnanir. Auk þeirra verst settu verði að koma til móts við millitekjufólk sem með herkjum nái að standa í skilum. „Til þess að lífeyrissjóðirnir og bankarnir geti dafnað inn í framtíðina þá verða þeir að hafa þjóð sem að hefur greiðslugetu,“ segir Ögmundur.

Mikilvægt sé að nú hafi ríkisstjórnin kallað alla að borðinu. Sérfræðingahópur hennar fundaði í dag, en í honum situr m.a annarra stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Hann segir samtökin taka þátt í viðræðunum meðan enn sé rætt um alvöru lausnir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is