Mánudagur 18.10.2010 - 06:57 - Ummæli ()

Trú og hefðir strokaðar út í skólastarfi? Ritstjóri vill að meirihlutinn láti í sér heyra

Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar virðist fyrst og fremst hafa hlustað á háværan minnihluta foreldra þegar það samdi tillögu sína um samskipti skóla og trúfélaga. Með þeim verða ýmsar gamlar og góðar hefðir í skólastarfinu afnumdar. Hvernig væri að meirihlutinn léti nú í sér heyra?

Þannig kemst ritstjóri Fréttablaðsins, Ólafur Stephensen, að orði í leiðara blaðsins í dag sem birtur er undir fyrirsögninni „Trú og hefðir strokaðar út?“

Ritstjórinn telur tillögurnar ganga alltof langt. Þannig sé lagt til að kirkjuferðum fyrir jól verði hætt, en þær hafi verið þáttur í starfi velflestra skóla og leikskóla. Sömuleiðis eigi að taka fyrir bænahald, sálmasöng og „listsköpun í trúarlegum tilgangi“ í skólunum. Það þýði væntanlega að nú megi ekki lengur syngja sálma á litlu jólunum og ekki föndra myndir af Maríu og Jesúbarninu fyrir jól. Lagt sé til að hætt verði að gefa börnum í sjöunda bekk frí til að fara í ferðalag vegna fermingarfræðslu. Heimsóknir fulltrúa trúfélaga í skóla og leikskóla eigi að banna. Þá sé því beint til skólanna að þurfi að leita aðstoðar vegna sálrænna áfalla skuli frekar kalla til „fagaðila“ en fulltrúa trúfélaga.

Í leiðaranum er vitnað í Margréti Sverrisdóttur, formann mannréttindaráðsins, sem segi þessar tillögur vera til komnar vegna kvartana foreldra barna í leik- og grunnskólum og fyrirspurna starfsfólks skólanna, sem vilji fá að vita hvaða reglur gildi um samstarf skóla og trúfélaga.

„Það er raunar alveg sjálfsagt mál að um það gildi skýrar reglur. En þarf það að þýða að hluti af trú, menningu og hefðum yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar verði strokaður út úr skólastarfinu?“ segir Ólafur Stephensen.

Ritstjórinn bendir á að Íslendingar séu að uppistöðu kristin þjóð, þótt fólki sem aðhyllist önnur trúarbrögð eða engin hafi fjölgað. „Níutíu prósent Íslendinga eru skráð í kristin trúfélög. Hátt í níu af hverjum tíu börnum fermast í kristinni athöfn. Hér skal fullyrt að yfirgnæfandi meirihluti foreldra barna í leik- og grunnskólum Reykjavíkur er ánægður með kirkjuferðirnar, fermingarfræðsluferðirnar, að prestar komi í skólann þegar áföll dynja yfir (slíkt er raunar hluti af áfallaætlun margra skóla og hefur gefizt vel), að sálmar séu sungnir á litlu jólunum og krakkarnir komi heim með myndir af Maríu, Jesúbarninu og öllum hinum í Betlehem á aðventunni.“

Hins vegar sé það minnihluti foreldra sem kvarti. Þær kvartanir nemi kannski einhverjum tugum á ári og sjálfsagt sé að starfsfólk skólanna hafi svör og úrræði á reiðum höndum. Rétt minnihlutans beri að virða. Að sjálfsögðu eigi ekki að þvinga börn, sem ekki eru kristin, til að fara í kirkju heldur finna þeim önnur verkefni á meðan. En það eigi ekki að taka ánægjuna af kirkjuferðinni af meirihlutanum. Ef einhver vilji ekki að börnin hans taki þátt í jólaföndri með kristilegu mótífi, sé sjálfsagt að koma til móts við það.

„En eyðileggjum ekki ævagamlar hefðir fyrir meirihlutanum,“ segir ritstjóri Fréttablaðsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is