Miðvikudagur 20.10.2010 - 13:05 - Ummæli ()

Grunaður erlendur fjársvikari sagður hafa fengið aðstoð íslenskra stjórnvalda

Nýtti forsetafrúin sér sambönd til að aðstoða grunaðan brotamann?

Samkvæmt gögnum sem indverskur fjölmiðill segist hafa komist yfir þá gerðu íslensk stjórnvöld, fyrir atbeina Dorrit Moussaieff, forsetafrúar, sitt til að gera hinn indverska Lalit Modi að sérstökum heiðurskonsúl Íslands þegar eftir því var leitað og það í hvelli. Slík staða hefði komið í veg fyrir að hægt væri að ljúka lögreglurannsókn á Modi sem er grunaður um veruleg og ítrekuð fjársvik í heimalandinu.

Modi þessi er landsþekktur í Indlandi og reyndar víðar en hann var formaður indversku krikketdeildarinnar sem er ein allra vinsælasta íþróttin í landinu. Er hann sakaður um verulegt fjármálamisferli og peningaþvætti og er hann nú eftirlýstur á vef Interpol.

Segir á indverska vefmiðlinum Headlines Today að miðillinn hafi séð gögn sem staðfesta að íslensk stjórnvöld hafi sent þeim indversku skeyti þar sem óskað er eftir að Modi verði gerður að heiðurskonsúl fyrir Íslands hönd. Indversk stjórnvöld hafi þó hafnað þeirri beiðni að ósk leyniþjónustu landsins.

Eiginkona Modi er æskuvinkona Dorit Moussaief forsetafrúar.

Yfirlýsing frá skrifstofu forseta:

Vegna fréttar á Eyjunni í dag vill skrifstofa forseta Íslands taka fram að Dorrit Moussaieff hefur engin afskipti haft af málefnum Lalit Modi undanfarin ár. Lalit Modi hafði hins vegar samband við hana fyrir fimm árum síðan og lét í ljós þá ósk að verða ræðismaður Íslands í borginni Mumbai, en um það leyti var þáverandi ræðismaður að láta af störfum. Modi hafði verið ræðismaður fyrir annað land um nokkurt skeið. Þessari ósk hans var þá komið á framfæri við utanríkisráðuneytið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is