Viðskipti Miðvikudagur 20.10.2010 - 10:31 - Ummæli ()

Tillaga Vigdísar og Ásmundar Einars gengur gegn lögum um þjóðaratkvæði

Nokkrir þingmenn vilja þjóðaratkvæði um áframhald ESB-viðræðna, en samkvæmt þeirra eigin lögum þurfa þrír mánuðir að líða þar til þjóðaratkvæði fer fram og því 27. nóvember ekki í myndinni.

Þingsályktunartillaga, sem lögð var fram á Alþingi í gær um að efna til þjóðaratkvæðis um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, er líklega ekki þingtæk. Hún gengur einfaldlega gegn nýsamþykktum lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur – lögum sem flutningsmenn tillögunnar tóku sjálfir þátt í að samþykkja.

Eyjan sagði í gær frá tillögu sjö þingmanna þar sem lagt er til að haldin verði sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort halda beri viðræðuferli Íslands við Evrópusambandið til streitu. Er lagt til að atkvæðagreiðslan verði haldin 27. nóvember, eða samhliða kosningum til stjórnlagaþings. Samkvæmt laganna bókstaf virðist þetta þó ekki ganga upp, þar sem þetta er of skammur fyrirvari.

Stutt er síðan Alþingi afgreiddi sérstök lög um þjóðaratkvæðagreiðslur, en lögin voru samþykkt 25. júní í sumar. Þar segir í 4. grein:

„Þjóðaratkvæðagreiðsla skv. 1. mgr. 1. gr. skal fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum og í síðasta lagi einu ári eftir að þingsályktunartillaga hefur verið samþykkt á Alþingi.“

Eina undantekningin frá þessu er þegar forseti synjar lögum staðfestingar, en þá skal ekki líða lengri tími en tveir mánuðir fram að atkvæðagreiðslu. Þingsályktunartillaga Vigdísar Hauksdóttur og félaga hefur þó ekkert með synjunarvald forseta Íslands að gera og því er ekki að sjá annað en að hún gangi gegn lögum um almennar þjóðaratkvæðagreiðslur.

Ganga gegn eigin lögum

Bæði Vigdís Hauksdóttir og Ásmundur Einar Daðason greiddu atkvæði með lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur í júní síðastliðnum, þar með talið ákvæðinu um að þrír mánuðir skuli líða þar til þjóðaratkvæðagreiðslan er haldin. Aðrir flutningsmenn, þau Birgitta Jónsdóttir, Árni Johnsen og Pétur H. Blöndal, greiddu ekki atkvæði.

Í athugasemdum við lagafrumvarpi um þjóðaratkvæði í sumar kom auk þess skýrt fram að löggjafinn telur nauðsynlegt að það líði „ákveðinn lágmarkstími vegna þess undirbúnings sem þarf að fara fram fyrir atkvæðagreiðsluna,“ einsog þar segir. Því er ekki annað að sjá en að þingsályktunartillagan í gær gangi gegn þessu sjónarmiði og beinum ákvæðum laga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is