Viðskipti Miðvikudagur 20.10.2010 - 17:57 - Ummæli ()

Vigdís segir skammtímaminnið hafa svikið sig. Gagnrýnir starfsfólk Alþingis

Vigdís segir skammtímaminnið hafa svikið sig og gagnrýnir starfsmenn Alþingis fyrir að hafa ekki séð mistökin.

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist hafa gleymt lagaákvæði um að minnst þrír mánuðir þurfi að líða fram að boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu, en Vígdís lagði í gær fram þingsályktunartillögu um að kjósa um áframhald ESB-viðræðna samhliða kosningum til stjórnlagaþings 27. nóvember.

Einsog Eyjan sagði frá í morgun, þá stenst þingsályktunartillaga Vígdísar og sex annarra þingmanna ekki nýleg lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. Lögin voru samþykkt í lok júní, en þar kemur skýrt fram að minnst þrír mánuðir skuli líða fram að boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu, en það er gert til að tryggja að halda megi nægilega kynningu á viðkomandi spurningu.

Þetta ákvæði hefur raunar ávallt verið ofarlega í þjóðmálaumræðunni, þó að það virðist hafa farið algerlega framhjá þingmönnunum sjö, þeim Vigdísi Hauksdóttur, Ásmundi Einari Daðasyni, Birgittu Jónsdóttur, Árna Johnsen, Pétri H. Blöndal og tveimur varaþingmönnum. Vigdís var því ekki ein um horfa framhjá þessu, heldur sex þingmenn til viðbótar.

„Já, það einfaldlega bara gleymdist. Ég mundi ekkert eftir þessu ákvæði,“ sagði Vigdís í síðdegisútvarpi Rásar 2, aðspurð um það hvort gleymst hefði að athuga hvort þingsályktunartillaga þeirra samræmdist lög um þjóðaratkvæðagreiðslur.

Gagnrýnir embættismenn Alþingis

Þá gagnrýndi Vigdís starfsmenn Alþingis fyrir að hafa ekki bent sér á þetta misræmi. Frumvarpið hefði verið sent embættismönnum í þinginu til yfirlestrar og enginn rekið augun í að þingsályktunartillagan stæðist ekki lög. Taldi hún að embættismennirnir hefðu getað komið í veg fyrir mistökin.

„Þetta var ekki nægilega vel unnið hjá mér og ég fæ þetta beint í andlitið aftur,“ sagði hún jafnframt.

Var sjálf í allsherjarnefnd en segir skammtímaminnið hafa svikið sig

Sjálf sat Vigdís þó í allsherjarnefnd, sem fjallaði um frumvarpið um þjóðaratkvæðagreiðslur síðastliðið vor. Þar er þessi þriggja mánaða frestur mjög skýr í 4. grein og raunar rökstuddur sérstaklega í athugasemdum við frumvarpið.

„En náttúrlega skammtímaminnið svíkur mann stundum,“ sagði hún í viðtalinu.

Vigdís hefur þó ekki gefist upp, heldur vill hún að lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur verði breytt, þannig að hægt verði að boða fyrirvaralaust til þjóðaratkvæðis, án ákvæðis um kynningartíma fyrir landsmenn.

Samkvæmt upplýsingum Eyjunnar frá Alþingi eru þó engar líkur á að slík breytingartillaga Vigdísar fái brautargengi, því hlé verður á þingstörfum næstu tvær vikurnar – fyrst vegna kjördæmaviku og svo tekur þing Norðurlandaráðs við. Þegar því lýkur verða aðeins rúmar þrjár vikur til kjördags stjórnlagaþings, 27. nóvember, og engar líkur á að hægt verði að gera slíka breytingu með svo stuttum fyrirvara, auk þess sem heimildir Eyjunnar herma að ekki sé þingmeirihluti fyrir þessháttar vinnubrögðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is