Viðskipti Laugardagur 23.10.2010 - 10:59 - Ummæli ()

Julian Assange gekk út úr viðtali við CNN eftir birtingu leyniskjala – Myndband

Julian Assange stendur upp og gengur út úr viðtalinu við CNN.

Julian Assange, prímusmótor uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks, stóð upp og gekk út úr sjónvarpviðtali við sjónvarpsstöðina CNN í vikunni. Sagðist hann ekki kunna við að spyrillinn vildi ræða ásakanir sem komu fram á hendur honum kynferðisbrot í Svíþjóð í sumar.

Viðtalið var tekið í tilefni þess að WikiLeaks birti nær 400 þúsund leyniskjöl um hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak. Á meðal þess sem þar kemur fram er að 15 þúsund fleiri óbreyttir borgarar hafi látið lífið en áður var talið eða um 122 þúsund. Þá komi á óvart, að Bandaríkjaher hafi lagt sig fram við að skrá nöfn þeirra Íraka, sem létu lífið.

Í viðtalinu við CNN reyndi spyrillinn ítrekað að fá Assange til að tjá sig um áhrif einkamála hans á starfsemi WikiLeaks. Assange varar spyrilinn nokkrum sinnum við, segist ætla að standa upp og fara ef hún reyni að blanda einkamálum hans saman við starfsemi félagasamtakanna. Þegar það heldur áfram, þá stendur hann við orð sín og gengur burt, einsog hér má sjá:

[youtube=youtube.com/watch?v=eYU7pdGfrUM&feature=player_embedded]


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is