Viðskipti Laugardagur 23.10.2010 - 16:49 - Ummæli ()

Mótmæla kvenfyrirlitningu Gillzeneggers með því að skrá sig úr símaskrá

Kvenfyrirlitning Gillzeneggers verður til þess að fjöldi fólks skráir sig úr símaskránni, en slíkt hefur ekki gerst áður í jafn ríkum mæli.

Nokkur hundruð manns hafa óskað þess að nafn þeirra verði afskráð úr símaskránni vegna þess að Egill „Gillzenegger“ Einarsson var fenginn til þess að leggja nafn sitt við skrána í ár. Mótmæli gegn Gillz má finna á facebook síðu undir yfirskriftinni:

„Afskráum okkur úr símaskránni 2011 til að mótmæla kvenfyrirlitningu Gillz“.

Frumkvæði að þessu hafði Hafsteinn Snæland en nú þegar hafa yfir þrjú hundruð manns tekið undir með honum. Vitnað er í forsvarsmann ja.is um að símaskráin sé „fjölmiðill sem nýtist til þess að koma mikilvægum skilaboðum til þjóðarinnar. Hún bætir því við að skrif Egils einkennist af „jákvæðni og bjartsýni.“ Egill Einarsson hefur ítrekað sýnt af sér kvenfyrirlitningu og opinberlega gagnrýnt þá sem ekki uppfylla hugmyndir hans um rétt útlit og hegðun. Okkur þykir skjóta skökku við að forsvarsmenn Já velji mann sem er helst þekktur fyrir þetta til að móta skilaboð símaskrárinnar. Með því að ráða Egil Einarsson til þessa verks er verið að færa hann og þær hugmyndir sem hann stendur fyrir inn á hvert heimili í landinu,“ segir í áskoruninni.

Sagði femínískar þingkonur vera vændiskonur

Þá er rifjuð upp bloggfærsla Egils, þar sem hann uppnefndi ýmsar konur með niðrandi orðum og er færslan sögð dæmi fyrir ófyrirleitna kvenfyrirlitningu hins meinta og sjálfskipaða listamanns.

Sem dæmi sagði hann um eina þingkonu að vandamál hennar væri að hafa aldrei fengið stífan lim, en sjálfur ætlaði hann að senda hóp af karlmönnum „í þetta verkefni“. Auðveldlega mátti skilja það sem hvatningu til nauðgunar.

Aðra þingkonu kallaði hann „portkonu“ sem líka þyrfti stífan lim og ætlaði hann að sjá til þess að á hana yrðu sendir „lágmark tveir harðir“.

Þá sagði hann eina blaðakonu Fréttablaðsins fá verðlaun frá sér fyrir að hafa stundað munnmök á yfirmenn sína.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is