Mánudagur 25.10.2010 - 16:02 - Ummæli ()

Allt að 50 þúsund í miðbænum að mótmæla þrátt fyrir slagveður

Gegn kynferðislegu ofbeldi er yfirskrift Kvennadagsins í dag

Þrátt fyrir rigningu og slagveður í höfuðborginni sáu um 50 þúsund einstaklingar ástæðu til að fara niður í miðbæ Reykjavíkur til að halda upp á Kvennafrídaginn en konur eru þar í miklum meirihluta. Margar konur lögðu niður vinnu á slaginu 14:25.

Hófst Kvennagangan við Hallgrímskirkju klukkan þrjú í dag og var þaðan gengið niður að Arnarhóli þar sem hátíðadagskrá fór fram en þetta er í fjórða sinn sem slíkur dagur er haldinn hátíðlegur. Er bæði um að ræða hátíðardag fyrir konur en þær eru ennfremur að minna á mikilvægi sitt í þjóðfélaginu en enn skortir töluvert á að þær njóta sannmælis við karlmenn víða í þjóðfélaginu.

Er Kvennadagurinn í dag sérstaklega helgaður mótmælum gegn kynferðisofbeldi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is