Mánudagur 25.10.2010 - 15:37 - Ummæli ()

Vísað úr landi eftir fimm ára bið og baráttu við kerfið

Áfrýjun dugði ekki til. Flóttamanni gert að yfirgefa landið.

Íraninn Mehdi Kavyanpoor skal yfirgefa landið enda hefur Hæstiréttur Íslands úrskurðað að hann hljóti ekki landvistarleyfi hérlendis en Kavyanpoor hefur barist við kerfið hérlendis um fimm ára skeið. Skuldar hann tvær milljónir króna vegna baráttu sinnar.

DV greinir frá máli Kavyanpoor sem var handtekinn hér á landi árið 2005 og hefur ítrekað á þeim tíma óskað landvistarleyfis enda óttast hann um líf sitt í heimalandi sínu. Kannast margir við Kavyanpoor frá því að hann fór í hungurverkfall árið 2008 til að mótmæla niðurstöðu Útlendingastofnunar þá þess efnis að neita honum um hæli.

Skuldar Kavyanpoor nú tvær milljónir króna í lögfræðikostnað enda dýrt að áfrýja dómum. Hafði hann þó ekki erindi sem erfiði enda féll Hæstaréttardómur fyrir skemmstu þar sem ekki er fallist á hans sjónarmið. Hann harðneitar þó að fara úr landi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is