Atvinnuleysi mest hjá ungu fólki á höfuðborgarsvæðinu. 12 þúsund án vinnu

Hér má sjá þróun atvinnuleysis eftir ársfjórðungum síðustu 5 ár. Almennt er atvinnuleysi mest á öðrum ársfjórðungi, þegar skólafólk bætist á vinnumarkað.
11.700 manns voru að meðaltali án atvinnu og í atvinnuleit á þriðja ársfjórðungi ársins, eða 6,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,1% hjá körlum og 6,8% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2009 til þriðja ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 800 manns, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar í dag.
Langmest er atvinnuleysi hjá ungu fólki, 16-24 ára, eða 11,1%. Hjá hópnum 24-54 ára var atvinnuleysi 6% og 3,8% hjá 55-74 ára.
Þá er ástandið á höfuðborgarsvæðinu mun verra en á landsbyggðinni, atvinnuleysi var 8% á höfuðborgarsvæðinu en 3,6% utan þess.
Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2010 höfðu 600 fengið vinnu sem átti að hefjast síðar, eða 4,7%. Til samanburðar höfðu 800 manns fengið vinnu, eða 7,4%, á þriðja ársfjórðungi 2009. Á þriðja ársfjórðungi 2010 höfðu um 2.700 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur, eða 23,1% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 800 manns, eða 7,1%.
Starfandi fólki fækkar um 1.300 og atvinnuþátttakan 81,4%
Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2010 var 170.200 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 181.900 manns sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku, en hún var 82,1% á sama tíma í fyrra.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is