Brottfluttir Íslendingar leita sér sálgæslu- aðstoðar erlendis í ríkum mæli

Miðbær Osló. Þar er erfiðara að fá störf en úti á landi í Noregi
Þeir Íslendingar sem flutt hafa búferlum til Noregs á undanförnum misserum leita í vaxandi mæli sálgæsluaðstoðar hjá presti Íslenska safnaðarins í landinu. Ástæðurnar eru að margir eru að flytja eingöngu út af fjárhagsvandræðum hérlendis sem bætast við áhyggjur vegna nýrra aðstæðna, tungumáls og nýrrar vinnu.
Eru um fimm þúsund Íslendingar nú búsettir í Noregi samkvæmt tölum þarlendrar Hagstofu og hafa aðeins á þessu ári rúmlega 800 manns bæst í þann hóp samkvæmt Fréttablaðinu.
Fólkið virðist mikið leita á náðir kirkjunnar og þá sérstaklega vegna sálgæslu að sögn Örnu Grétarsdóttur prests safnaðarins. „Það er leitað mikið til mín og það hefur verið gríðarleg aukning í sálgæslu. Það orsakast kannski af því að fólk er margt að flytja úr erfiðleikum og basli og við það bætast búferlaflutningar, nýtt tungumál, ný vinna og breyttar aðstæður.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is