Miðvikudagur 27.10.2010 - 06:26 - Ummæli ()

Aðgangi að Núpsstað lokað. Enginn til að hafa eftirlit á staðnum. Umgengni slæm

Eigandi jarðarinnar Núpsstaðar í Fljótshverfi hefur lokað aðgangi ferðafólks og annarra að Núpstað. Hefur vegatálmunum verið komið fyrir í heimreiðinni.

Morgunblaðið segir frá þessu í dag.

Á Núpsstað eru friðlýst hús, þar á meðal gamalt bænhús úr torfi sem að stofni til er frá sautjándu öld. Núpsstaður er austasti bærinn í Skaftárhreppi og stendur vestan við Lómagnúp

„Ég átti engan annan kost en að loka heimreiðinni. Þjóðminjasafnið útvegaði starfsmann þarna í sumar en sjálfur á ég heima á Hvoli skammt frá þar sem ég hef verið að byggja upp ferðaþjónustu. Ég hef ekki tök á því í augnablikinu að setjast að á Núpsstað þó ég hafi fullan hug á því, auk þess sem húsin eru vart íbúðarhæf,“ er haft eftir Hannesi Jónssyni, eiganda Núpsstaðar í Morgunblaðinu.

Hannes ákvað að loka heimreiðinni þar sem engin varsla eða eftirlit er tryggt við bæinn, auk þess sem umgengni ferðamanna hefur verið slæm.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is