Miðvikudagur 27.10.2010 - 06:26 - Ummæli ()

Fjöldi lækna til Svíþjóðar. Vinna sér inn íslensk mánaðarlaun á nokkrum dögum

Fjölmargir íslenskir læknar taka að sér tímabundna vinnu í útlöndum til að láta enda ná saman.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

„Við læknar erum ekkert síður í klemmu fjárhagslega en aðrir þegnar þjóðarinnar. Menn eru í misgóðum málum þar,“ er haft eftir Guðmundi Karli Snæbjörnssyni, sem rekur fyrirtæki sem aðstoðar lækna við að taka að sér afleysingaverkefni í Svíþjóð en með því gefst læknum kostur á að vinna sér inn íslensk mánaðarlaun á nokkrum dögum.

Guðmundur segir í Morgunblaðinu að eftirspurn eftir íslenskum læknum í Svíþjóð sé mjög mikil. „Eftirspurnin er svo mikil að ég held að við gætum tæmt landið og það mundi ekki finna fyrir því. Eftirspurnin yrði áfram alveg öskrandi í Skandinavíu,“ segir hann.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is