Miðvikudagur 27.10.2010 - 08:00
- Ummæli
()
Jessica White (26): Kærasta Sean Penn handtekin fyrir að berja konu
Nýja kærastan hans Sean Penn var handtekin um helgina fyrir að ráðast á aðra konu með kjafti og klóm.
Konurnar voru staddar fyrir utan skemmtistað í New York þegar fórnarlambið reyndi að ná leigubíl á undan Jessicu með þeim afleiðingum að Jessica réðist á hana.
Að sögn New York Post á Jessica að hafa kýlt konuna nokkrum sinnum í andlitið, togað í hárið á henni og bölvað í sand og ösku.
Hún var handtekinn fyrir minniháttar árás en sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Fyrirsætan Jessica hefur verið að hitta hinn fimmtuga Sean Penn í nokkra mánuði.
Sjálfur var hann nýlega dæmdur til að sinna samfélagsþjónustu í 300 klukkustundir fyrir að hafa ráðist á blaðaljósmyndara.
Hresst par.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
