Miðvikudagur 27.10.2010 - 06:43 - Ummæli ()

Leynilegir hluthafar í lyfjafyrirtæki sem fékk um milljarð afskrifaðan hjá Landsbankanum

Landsbankinn veit hverjir eiga fyrirtækið Lyfjaþjónustuna, sem fékk að kaupa lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis ehf. af bankanum síðastliðið sumar fyrir 250 milljónir króna. Upphæðin var staðgreidd. Kristján Jóhannsson, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, var við kaupin skráður eini eigandinn og ætlaði að gefa upp nöfn hluthafa í september. Hvorki hann né bankinn vilja nú upplýsa hverjir hluthafarnir eru og segir Kristján nöfnin verða birt með ársreikningum á næsta ári.

DV fjallar um málið í dag.

Blaðið segir að ekki fáist upplýst hverjir raunverulegir eigendur Lyfjaþjónustunnar ehf. séu auk Kristjáns þrátt fyrir fyrirheit um að hluthafalisti yrði kynntur í haust. Kristján hafi einn verið skráður eigandi Lyfjaþjónustunnar síðastliðið sumar þegar félagið keypti lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis af Landsbankanum. Kaupverð hafi verið 250 milljónir króna og upphæðin staðgreidd samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum. Ljóst sé að við endurfjármögnun félagsins afskrifaði Landsbankinn einn milljarð króna að lágmarki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is