Útrás Sigurjóns Sighvatssonar til Skandinavíu fjár- mögnuð með lánum

Scanbox er enn í rekstri þrátt fyrir milljarða skuldir
Útrás athafnamannsins Sigurjóns Sighvatssonar til Skandinavíu var að mestu leyti fjármögnuð með lánveitingum frá Straumi árið 2007. Fyrirtæki hans þar, Scanbox, skuldaði hartnær sex milljarða króna við fall bankanna og er eigið fé þess neikvætt um tvo milljarða um þessar mundir. Engar skuldir hafa þó verið afskrifaðar.
Keypti Sigurjón Scanbox með það fyrir augum að koma sér fyrir á markaðinum í Skandinavíu en Scanbox er bæði framleiðandi og dreifingaraðili á kvikmyndum og þáttum. Fyrirtækið keypti hann árið 2007 og tók til þess meðal annars sex milljarða króna kúlulán hérlendis.
Sonur Sigurjóns segir við DV að engar skuldir hafi verið afskrifaðar hingað til og er félagið enn í fullum rekstri og hefur tekist að greiða allar skuldir hingað til.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is