Viðskipti Sunnudagur 31.10.2010 - 13:42 - Ummæli ()

Andri Geir: Ef við segjum „nei“ við ESB-aðild munu næstu kynslóðir flytja til ESB

Andri Geir: Ef kynslóðin sem nú er við völd segir nei við ESB, þá segir næsta kynslóð nei við foreldra sína og fer úr landi.

Yngri kynslóðir munu segja „nei“ við foreldra sína og flytjast til Evrópusambandsins ef eldri kynslóðir segja „nei“ við aðild að sambandinu. Næsta kynslóð mun þá einfaldlega leysa sína stöðu sjálf með því að fara úr landi og flytjast til ESB.

Þetta sagði Eyjubloggarinn Andri Geir Arinbjarnarson í Silfri Egils í dag, en Andri Geir hefur verið afkastamikill þjóðfélagsrýnir eftir hrun.

Andri Geir sagðist gera sér grein fyrir að aðild að Evrópusambandinu væri í dag minnihlutaskoðun á Íslandi. En hann segir að sum stjórnmálaöfl séu andvíg ESB-aðild án þess að vita hvað „nei við ESB“ þýði. Með nei-i vanti algerlega svör við mikilvægustu spurningunum í uppbygingunni, s.s. stefnu í gjaldmiðlamálum, stefnu í atvinnumálum og hvernig ætti að fá fjármagn til landsins. Það síðastnefnda væri nauðsynlegt til að komandi kynslóðir geti hleypt sínum verkefnum og draumum í framkvæmd.

„Þegar við lítum til baka þá sjáum við að afar okkar og ömmur fengu erlent fjármagn til að setja upp Landsímann. Foreldrar okkar fengu fjármagn erlendis frá til að byggja Búrfellsvirkjun. Allar kynslóðir hafa þurft erlent fjármagn til að koma sínum verkefnum í framkvæmd. Og hvað ætlum við að segja við næstu kynslóð? „Þið eigið bara að borga skuldirnar okkar.“ Ef við segjum „nei“, þá er svo mikil hætta á að kynslóðin segi einfaldlega „nei“ við foreldra sína og fari úr landi. Þannig að „nei“ í sjálfu sér er ekki nógu sterkt afl fram á við,“ sagði Andri Geir.

Taldi hann óábyrgt af stjórnmálaöflum og hagsmunasamtökum að vilja einfaldlega ýta aðild að Evrópusambandinu út af borðinu án þess að hafa nokkuð annað til málanna að leggja í gjaldmiðlamálum. Stefnuleysi í peningamálum verður til þess að erlendir fjárfestar halda að sér höndum, að hans mati.

„Ef þetta verður ekki leyst, þá mun næsta kynslóð bara leysa þetta sjálf með því að fara bara úr landi og flytjast til ESB,“ sagði Andri Geir. „Tifandi tímasprengja tikkar í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is