Mánudagur 01.11.2010 - 10:28 - Ummæli ()

Dagblöð á undanhaldi – Spáð að útgáfa leggist af árið 2018 á Íslandi

Spákort um dauða dagblaða

Dagblöð munu leggjast af í núverandi mynd árið 2017 í Bandaríkjunum, og ári síðar á Íslandi og Bretlandi, samkvæmt fjölmiðlaspá ástralska hugmyndabankans Future Exploration Network. Spáin byggir á greiningu upplýsinga um núverandi notkun fjölmiðla og fyrirsjáanlegri tækniþróun.

Talsmaður hugmyndabankans, Ross Dawson, segir í samtali við ástrálska dagblaðið The Australian að starfsemi prentaðra dagblaða muni í auknum mæli færast yfir á aðra miðla. „Í hinum þróaða heimi eru dagblöð að deyja út sökum örra breytinga á fjölmiðlanotkun og tapreksturs,“ segir Dawson sem spáir því að útgáfa dagblaða verði orðin „óveruleg“ í 52 löndum árið 2040.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is