Stofnun öryggis- og viðbragðsteymis vegna netárása samþykkt

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stofna öryggis- og viðbragðsteymi vegna hugsanlegra netárása. Í fréttatilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu segir að hlutverk slíks teymis verði að fyrirbyggja netárásir og samræma viðbrögð og öryggi gagnvart hugsanlegum árásum tölvuþrjóta á net- og upplýsingakerfi. Reiknað er með að slíkt teymi myndi vera í nánu alþjóðlegu samstarfi. Málið hefur verið í undirbúningi um skeið og er næsta skref að fá fjarskiptafyrirtæki og aðra hagsmunaaðila til samráðs.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið telur brýnt að tryggja öryggi net- og upplýsingakerfa og er skipan slíks viðbragðsteymis fyrsta skrefið í því efni. Póst- og fjarskiptastofnun hefur verið falið að leggja fram tillögur um framkvæmd og fjármögnun. Miðað er við að auk þess að tryggja öryggi almennra fjarskiptaneta þurfi að huga að regluverki vegna heimilda til inngripa vegna yfirvofandi netárása. Einnig þarf að huga að því hvernig tryggja má öryggi innan skilgreindra atvinnuvega sem reiða sig mjög á fjarskipti, til dæmis fjármálaþjónustu, orkufyrirtæki, varnarmál og stjórnsýslu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is