Veðurstofa fylgist náið með framvindu mála – hægt vaxandi hlaup í gangi
Vatnamælingamenn Veðurstofu Íslands fylgjast vel með framvindu mála við Grímsvötn, en hægt vaxandi hlaup úr Grímsvötnum í Gígjukvísl hófst í gær. Talsverð virkni hefur verið á skjálftamælum Veðurstofunnar undanfarna daga. „Engar vísbendingar eru ennþá um að gos sé að hefjast,“ segir Gunnar Guðmundsson hjá Veðurstofu Íslands. „Haustið 2004 hljóp úr Grímsvötnum og gos fylgdi í kjölfarið, en oft koma hlaup án þess að gos fylgi.“
Á heimasíðu veðurstofunnar kemur fram að rennslið hafi aukist stöðugt. Milli kl. 14:00 og 15:00 í gær mældist rennslið 143 m3 sek., en milli kl. 09:00 og 10:00 í morgun var rennslið var 455 m3 sek. Vatnsmælir við Gígjukvísl sýnir að vatnsborð árinnar hefur hækkað rétt um metra frá því kl. 14:00 í gærdag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
