Viðskipti Fimmtudagur 04.11.2010 - 15:28 - Ummæli ()

Jóhanna: Lenging húsnæðislána ein þeirra lausna sem eru í skoðun

Ein þeirra lausna á skuldavanda heimilanna sem er til skoðunnar er lenging lána sem dregur tímabundið úr greiðslubyrði. Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttir við fyrirspurn Bjarna Benediktssonar um til hvaða úrræða ríkisstjórn hennar hygðist grípa til að leysa úr þeim vanda.

Jóhanna hefur áður greint frá því að nú séu til skoðunnar í samvinnu við Hagsmunasamtök heimilanna, átta eða níu tillögur um hvernig sé best að bregðast við þessum vanda. Hún kvaðst reikna með að þeirri vinnu yrði lokið n.k. mánudag. Í framhaldinu yrðu svo boðað til samráðsfundar um næstu skref.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is