Fimmtudagur 04.11.2010 - 01:49 - Ummæli ()

Jóhanna segist sitja út kjörtímabilið, boðar til fundar um skuldavanda heimilanna

„Ég er uppfull af bjartsýni fyrir hönd samfélagsins um að við getum náð okkur út úr þessu ef að við berum gæfu til þess að ná saman um lausn á erfiðleikunum. Við þurfum á jákvæðni að halda í samfélaginu en ekki svartsýni sem mér finnst of mikið bera á hjá stjórnarandstöðunni,“ segir jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í ítarlegu viðtali við Mbl.is.

Hún segist jafnfram staðráðin í því að ljúka þessu kjörtímabili og kveðst vilja aukið samráð við Sjálfstæðisflokkinn, en gagnrýnir stjórnarandstöðuna fyrir skort á hugmyndum um viðreisn atvinnulífsins og ala á sundrungu. Jóhanna kemur víða við í viðtalinu, og segir meðal annars:

Það hefur lengi verið kallað eftir því af hálfu stjórnarandstöðunnar, ekki síst sjálfstæðismanna og framsóknarmanna, að koma að borðinu í samráði að því er varðar atvinnumálin og atvinnuuppbygginguna. Aðilar vinnumarkaðarins hafa verið að kalla eftir því og núna síðast Alþýðusamband Íslands, sem við höfum átt fund með, þar sem það kallar eftir því að það verði myndað samskonar samstarf í kringum atvinnumálin og atvinnuuppbyggingu eins og verið hefur um skuldamál heimilanna.

Við brugðumst við þessu kalli og það kemur því á óvart að það virðist vera tregða hjá stjórnarandstöðunni að ganga til slíks breiðs samstarfs sem hefur verið kallað eftir mjög lengi. Það hefur til dæmis verið kallað eftir því þegar við höfum verið að ræða skuldavanda heimila við stjórnarandstöðuna að um leið yrði líka fjallað um atvinnumálin og atvinnuuppbygginguna og ég taldi því að þeir yrðu ánægðir með það að koma að þessu samstarfsborði sem við erum að kalla eftir, þar sem meðal annars yrði myndað svipað samráð þar sem nefndir þingsins og aðrir aðilar kæmu að þessu, á borð við aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélögin. Þess vegna kom mér það á óvart að þeir skyldu ekki taka því fagnandi að það yrði boðað til slíks samráðs.

Jóhanna svarar einnig gagnrýni Þórs Saari þess efnis að Ögmundur Jónasson sé eini ráðherrann í ríkisstjórninni sem hafi raunverulega áhuga á að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Þvert á móti ríki einhugur í ríkisstjórninni um að takast verði á við þann vanda:

Það er það sem við höfum verið að gera og við erum í fullri einlægni í samstarfi um skuldavandann með þessum aðilum sem að þessu borði hafa komið, sem eru Hagsmunasamtök heimilanna, sem eru lífeyrissjóðirnir, sem eru bankarnir og Íbúðalánasjóður og við erum í fullri einlægni að þessu, ekki síður en Ögmundur Jónasson þannig að ég blæs á þetta og finnst þetta ómerkilegur málflutningur af Þór Saari ef hann telur að Ögmundur Jónasson sé eini maðurinn sem er í einlægni að taka á skuldavanda heimilanna.

Jóhanna segir ennfremur að unnið sé í að fara yfir úrræði fyrir heimilin, en átta eða níu tillögur séu til sérstakrar skoðunnar og verið sé að vinna í að reikna áhrif þeirra með Hagsmunasamtökum heimilanna. Skýrsla þeirra verði væntanlega til á mánudag, og þá vilji hún boða til annars fundar í Þjóðmenningarhúsinu með sömu aðilum og komu að málinu fyrir þremur vikum.

Ég er uppfull af bjartsýni fyrir hönd samfélagsins um að við getum náð okkur út úr þessu ef að við berum gæfu til þess að ná saman um lausn á erfiðleikunum. Við þurfum á jákvæðni að halda í samfélaginu en ekki svartsýni sem mér finnst of mikið bera á hjá stjórnarandstöðunni. Ég mun leggja mig alla fram í þessari ríkisstjórn við að ná okkur upp úr þessum erfiðleikum. Við erum vel hálfnuð í þessu verki. Við erum að byrja að spyrna frá botninum.

Nánar á vef Morgunblaðsins


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is