Hvers vegna er ekki lögð fram vantrauststillaga spyr forsætisráðherra

Hvar er vantrauststillagan?
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vildi fá svar við þeirri spurningu á þinginu í dag hvers vegna ekki hefði komið fram vantrauststillaga af hálfu stjórnarandstöðunnar ef störf ríkisstjórnar hennar væru jafn hræðileg og formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks halda fram.
Svaraði Jóhanna með þessum hætti harkalegri gagnrýni Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanns Framsóknarflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag en Rúv greinir frá.
Sögðu formennirnir að aðgerðir stjórnvalda væri marklausar og hreint leikhús sem sett væri á svið. Áttu þeir þar við boð stjórnvalda um aðkomu stjórnarandstöðu að samráðsfundum um aðgerðir í skulda- og atvinnumálum.
Jóhann bætti við að hún treysti ekki utanþingsstjórn þar sem í þá stjórn myndi forseti Íslands handvelja fólk. Því meiri ástæða væri til samstarfs.
Fer engum sögum af viðbrögðum Sigmundar né Bjarna við þessari fyrirspurn Jóhönnu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is