Fimmtudagur 04.11.2010 - 06:47 - Ummæli ()

Rannsókn: Kaupmáttur tekjulægsta fólksins eins og fyrir þremur árum

Kaupmáttur tekjulægstu heimilanna dróst saman um 6,6 prósent á milli ára í fyrra. Þeir sem hafa hæstu tekjurnar misstu hins vegar 28,2 prósent kaupmáttar. Sýnir að stjórnvöld vörðu tekjulága, segir prófessor.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag.

Blaðið segir að kaupmáttur tekjulægstu heimila landsins eftir skatt sé sambærilegur og árin 2006 til 2007. Aftur á móti hafi kaupmáttur hinna tekjuhæstu færst aftur um sex ár ef miðað er við lok síðasta árs.

„Þetta sýnir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem áttu að milda áhrif kreppunnar á lægri tekjuhópa hafi gengið eftir. Þeim var hlíft við áhrifum skattahækkana,“ er haft eftir Stefáni Ólafssyni, prófessor í félagsfræði og forstöðumanni Þjóðmálastofnunar, sem fjallar um málið í nýjasta fréttabréfi sínu.

Umfjöllunin byggir á þróun launatekna samkvæmt álagningu Ríkisskattstjóra síðastliðin tvö ár. Þar kemur fram að launatekjur drógust almennt saman um fimmtán prósent milli áranna 2008 og 2009 á sama tíma og fjármagnstekjur af arði, vöxtum og söluhagnaði drógust saman um 36 prósent að raunvirði.

Í samtalinu við Fréttablaðið bendir Stefán á að tekjulægstu heimilin hafi notið góðs af hækkun persónuafsláttar og barna- og vaxtabóta í fyrra á sama tíma og auðlegðarskattur, lægri fjármagnstekjur og rýrari launatekjur komu harðar niður á tekjuhæsta hópnum.

„Tekjur þessa hóps hækkuðu mikið meira en annarra áður. Hann er enn með tvöfalt meira forskot,“ segir Stefán og bætir við að þrátt fyrir skerðingu tekjuhæsta hópsins hafi kaupmáttur hans verið 37,7 prósentum hærri í lok árs 2009 en árið 2000. Kaupmáttur tekjulægsta hópsins jókst um 18,4 prósent á sama tíma.

Loks segir í Fréttablaðinu að Stefán telji að spár um allt að tuttugu prósenta kaupmáttarrýrnun hafa gengið eftir að mestu í fyrra. Búast megi við bata á þessu ári og því næsta.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is