Bankarnir græða vel á lágum vöxtum. 89 milljarðar króna á veltureikningum

Í raun borgar sig ekki að geyma fé á veltureikningum bankanna
Íslensku bankarnir eru að hagnast verulega á þeim fjármunum sem landsmenn geyma á veltureikningum en raunvextir á slíkum reikningum eru í öllum tilvikum neikvæðir sé verðbólga tekin með í reikninginn. Þannig eru nánast engir vextir af 89 milljörðum króna á veltureikningum bankanna.
Morgunblaðið fer yfir stöðuna í þessu en vextir á mörgum veltureikningum bankanna eru nú 0,1 prósent. Að teknu tilliti til 3,3 prósenta verðbólgu fást hundrað krónur í vexti á ársgrundvelli af hverjum hundrað þúsund krónum.
Þá reynist vaxtamunur banka á milli líka mikill. Tekið er dæmi af gullreikningi Arion banka. Lægstu innlánsvextir eru 0,3% en ef viðkomandi nýtir sér heimild til yfirdráttar greiðir hann 10,85 prósent vexti til bankans. Íslandsbanki býður upp á tékkareikning sem heitir Vild og hann ber 0,1% vexti, en yfirdráttur á honum ber 12,5 prósenta vexti. Lægstu vextir á Vörðu-reikningi Landsbankans eru 0,95% en lægstu yfirdráttarvextir eru 10,45 prósent.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is