Viðskipti Þriðjudagur 09.11.2010 - 12:33 - Ummæli ()

Gylfi Zoëga: Skuldastaða Íslands erlendis furðulega góð

Staða Íslands erlendis er furðulega góð að mati hagfræðings

Hreinar skuldir íslenska þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi yfirstandandi árs eru mun minni en þær voru í sama ársfjórðungi árið 2003 við upphaf svokallaðs góðæris. Eignastaðan sé jákvæð um 2,6 prósent nú í stað neikvæðrar eignastöðu árið 2003 um 68 prósent.

Þetta er niðurstaða Gylfa Zoëga, hagfræðiprófessors, en hann birtir hugleiðingar sínar í ritinu Vísbendingu sem Fréttablaðið vitnar til.

Kemst Gylfi að þeirri niðurstöðu að skuldastaðan erlendis sé góð þegar tillit sé tekið til erlendra eigna þjóðarbúsins en bendir einnig á að miklar brúttóskuldir feli í sér áhættu. Þá dregur hann þá ályktun af þessu að það séu erlendir fjárfestar sem greitt hafi fyrir viðskiptahalla landsins. Reikningurinn fyrir því sé þannig falinn  í gjaldþrota bönkunum með þeim varnagla að tveir stóru viðskiptabankanna séu nú þegar í eigu erlendra aðila.

Meginverkefni stjórnvalda, að mati Gylfa, sé nú að sannfæra erlenda fjárfesta að greiðslufall landsins árin 2008 og 2009 hafi verið undantekning en ekki regla.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is