Loks niðurstaða: Samgöngumiðstöð slegin af borðinu en aðstaða farþega bætt

Búið var að teikna samgöngumiðstöð, með nýrri flugstöð, fyrir milljarða króna, en nú hefur verið hætt við allt saman.
Samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli var slegin út af borðinu á fundi borgarstjóra og samgönguráðherra síðdegis í dag, en í staðinn ákveðið að finna aðra leið til að bæta aðstöðu farþega þar til flugvöllurinn hverfur úr Vatnsmýrinni.
Þetta kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Ögmundur Jónasson, samgönguráðherra, staðfesti við fréttastofuna að samgöngumiðstöðin væri nú út af borðinu. Samkomulag væri þó um að ná niðurstöðu um að bæta aðstöðu farþega innanlandsflugs enda sé ljóst að þrátt fyrir ágreining um framtíð flugvallarins verði hann þar næstu ár.
Mjög hefur verið deilt um ágæti þess að ráðast í byggingu samgöngumiðstöðvar, enda hafa borgaryfirvöld stefnt að því að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni innan fárra ára.
Fulltrúar borgarinnar, með þá Jón Gnarr borgarstjóra og Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs, í broddi fylkingar, segja engan vilja fyrir samgöngumiðstöð, enda væri verið að undirbúa brotthvarf flugvallarins, að sögn aðstoðarmanns borgarstjóra, Björns Blöndal.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is