Laugardagur 13.11.2010 - 19:00 - Ummæli ()

50 Cent á væntanlegri plötu frá Michael heitnum Jackson

Rapparinn 50 Cent, Lenny Kravitz og Akon verða allir á væntanlegri plötu frá hinum látna Michael Jackson en það er Sony sem gefur diskinn út.

50 Cent, sem heitir réttu nafni Curtis Jackson, mun vera með í laginu Monster.

Akon syngur inn á Hold My Hand en það er fyrsta smáskífulagið sem verður gefið út af plötunni. Hann lýsir laginu sem einstaklega fallegu og heillandi.

Michael er í tíu lögum á plötunni sem á að koma út þann 14 desember.

Móðir söngvarans heitna, Katherine, hefur látið í veðri vaka að lögin séu ekki öll sungin af syni hennar heldur séu fimm þeirra sungin af eftirhermu. Sony segja þetta algjöran þvætting, lögin séu öll sungin af Michael á nokkurra mánaða tímabili áður en hann lést.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is