Biskup á kirkjuþingi: Rangt að tala um ríkisrekna kirkju á Íslandi
Karl Sigurbjörnsson, biskup, telur rangt að tala um að á Íslandi sé ríkisrekin kirkja. Þjóðkirkjan sé sjálfstætt trúfélag sem njóti sérstöðu og eigi í sérstöku sambandi og samstarfi við ríkið, en það samstarf og samskipti taki breytingum og þróist í samræmi við samfélagsþróunina, að mati biskups.
Þetta kom fram í setningarávarpi biskups á kirkjuþingi í dag. Umræða um ríkisrekna kirkju hefur verið nokkuð hávær undanfarið, ekki síst þar sem margir frambjóðendur til stjórnlagaþings vilja að ákvæði um ríkisrekna þjóðkirkju verði felld úr stjórnarskránni.
„Umræðan um ríki og kirkju snýst að mínu mati of oft um fjármál, eignir og embætti. Sama á svo sem við um íslensk stjórnmál alla jafna og yfirleitt. Hún ætti fremur að snúast þetta sem Páll Skúlason minnir á: um eðli, eigind og grundvallargildi þjóðríkisins og menningarinnar,“ sagði biskup í umræðu um stjórnarskrá og hlutverk hennar í uppbyggingu samfélagsins. „Sjálfur er ég sannfærður um að þjóðríkið verður ekki reist á traustari gildum en þeim sem hinn kristni, evrópski arfur leggur til, réttlæti, mannúð, ábyrgð,“ sagði hann.
Þá ræddi Karl Sigurbjörnsson um væntingar og traust og minnti á að þjóðarpúls birtist líka í þátttöku í starfi og væntingum til þjónustu kirkjunnar og atbeina í samfélaginu. „Starf og þjónusta þjóðkirkjunnar nær til landsmanna allra til ystu nesja og innstu dala. Hið þétta og víðtæka samfélagsnet sem þjóðkirkjan myndar í íslensku þjóðfélagi mótar þjóðarvefinn og menninguna meir en okkur er alla jafna ljóst. Á þriðja hundrað söfnuðir þjóðkirkjunnar starfa um land allt, þar sem á annað þúsund manns sitja í sóknarnefndum, þúsundir syngja í kirkjukórum og barnakórum kirknanna. [..]Þjóðkirkjan er víðfeðm og fjölbreytt almannahreyfing.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
