Brugðist við samdrætti: Sveitarfélögin vilja spara einn milljarð í grunnskólakerfinu
Samband íslenskra sveitarfélaga vill að rekstrarkostnaður grunnskóla lækki um milljarð með fækkun kennslustunda. Sveitarfélögin verða að mæta átta milljarða króna tekjulækkun með lækkun rekstrarkostnaðar.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
Blaðið segir að í sparnaðarráðstöfunum vegna tekjusamdráttarins sé horft er til allra rekstrarliða.Telji Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, mögulegt að lækka rekstrarkostnað grunnskólanna um milljarð króna.
Fram kemur að kostnaður við rekstur skólanna er um helmingur alls rekstrarkostnaðar sveitarfélaga.
„Við höfum ekki lengur efni á að gera allt sem við höfum gert og þurfum að taka út ýmislegt sem hefur bólgnað fullmikið út á síðustu árum,“ er haft eftir Halldóri. „Þetta á við um lengri kennslutíma, meira val og alls konar þætti sem eru auðsjáanlega of dýrir.“
Fréttablaðið segir að sveitarfélögin hafi meðal annars lagt til svokallaða 5,4,3 leið. Í henni felist að fækka kennslustundum elsta grunnskólastigsins um fimm á viku, fjórar hjá miðstiginu og þrjár hjá yngstu krökkunum. Óskað hafi verið eftir samstarfi við menntamálaráðherra því sparnaðarleiðirnar geti kallað á breytingu á lögum og reglum. „Það þarf alvöru samstarf ríkis og sveitarfélaga við að ná niður kostnaði og auka sveigjanleika,“ segir Halldór í Fréttablaðinu og kveðst telja skólastarfið ráðast um of af kjarasamningum kennara. Dæmi séu um að kennarar fari á yfirvinnukaup við kennslu á miðjum degi þar sem kennsluskyldunni þann daginn sé lokið. Að kennslustund lokinni sinni þeir svo öðrum þáttum starfsins á dagvinnukaupi því þeim beri að vera í vinnunni til klukkan fjögur.
Loks segir í frétt blaðsins að Halldór telji ekki vegið að menntun þó sparað verði um milljarð í grunnskólunum. „Stundum er sagt að það megi ekki svipta ungdóm landsins möguleikum á að mennta sig. En það er enginn að tala um það. Það er ýmislegt hægt að gera án þess að það komi á nokkurn skapaðan hátt niður á menntuninni.“-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is